Get all 5 Vetur releases available on Bandcamp and save 35%.
Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality downloads of Vist, Þorraþræll, Nætur, Blóðvefur, and Vættir.
1. |
Haugfé
01:44
|
|||
Instrumental
|
||||
2. |
Gandreið
04:51
|
|||
Þeysist yfir frosna jörðina
Fylg eftir skugga á himninum
Ná ég verð þessum fjanda
Áður en skjóti minn drepst
Hún flýgur
Með ofsa
Í för
Hún beislar
Hún drepur
Enginn fær
Miskunn
Hún beislar
Inn í land
Fjöllin
Jökull
Hún beislar
Blóðslóð
Móbarð
Sandhóll
Hún beislar
Ég kem of seint
Ég sé blóðið
Ég sé líkin
Börn og konur
Og tættir menn
Og rifin dýr
Og brunnin hús
Allt var lagt í rúst
Hún flýgur
Mergsýgur
Tryllingur
Hún beislar
Máninn
Lýsir
Gandreiðin
Hvað kemur nú
Hrollurinn með
Nístingskuldi
Hlátrasköll óma um himin
Þeysiferð yfir
Frosna frón
Eftirförin
Til heljar og til baka
Þeysist yfir frosna jörðina
Fylg eftir skugga á himninum
Ná ég verð þessum fjanda
Áður en skjóti minn drepst
Við ysta fjörð
Við sjávar jörð
Við hvítan svörð
Ég stend með spjótið á öxl
Hún lendir loks
Gandur dauður er
Glottið er stórt
Með blóðugan kjaft hún hlær að mér
Og sýnir sinn kraft
Krefst sinnar fórnar
Gefst ekki upp
En ég hleyp til hennar með spjótið á lofti
Öskra til hennar
En hleyp á vegg
Spjót mitt brotnar
Og ég fell til jarðar máttlaus og frosinn
|
||||
3. |
Dalalæða
05:30
|
|||
Ég arka ákveðinn í muggunni
Sem lagst hefur yfir land
Beygur í hold mitt læsist
Ég er ekki einn á ferð
Dulin vá leynist í þokunni
Sem fellir jafnt skepnur og menn
Brostin augu þeirra stara út í tómið
Þögnin er ærandi
Náttúran
Hefur þagnað
Þögn hennar
Er ærandi
Þokan læðist með fjallshrygg
Yfir mógult grasið
Daggardropar á hverju strái
Gráföl birta umleikur mig
Náttúran
Hefur þagnað
Þögn hennar
Er ærandi
Smábárur vatnins kyrrast
Brátt hverfur það í þokuna
Þokan gleypir allt
Eftir húmir gráföl birtan
Uppi á heiði
Bíður vatnið eina
Friðsælt og hreint
Ég læt mig falla og sekk
Svarta djúpið faðmar mig
Fagnar komu minni
Eftir húmir gráföl birtan
Hvar minningin enn lifir
|
||||
4. |
Þrá
04:07
|
|||
Við jaðar heims manna
Svört augu störðu á ljósið
Lífsins birta heit og skær
Þráin eftir því sem áður var
Þráin
Angist
Eymdin
Sorgin
Veinin
Sárin
Myrkrið
Eilíft
|
||||
5. |
Píningur
06:46
|
|||
Éljúðnir opnaðist upp á gátt í norðri
Heljarfrost yfirtók allt landið
Stigveldi hörku frá haustmánuðum
Til enda góu er hafið fraus við frón
Sólsett í upphaf þorra
Tók með sér allan yl
Sultur á borðum í hverjum bæ
Sviðin bein í öllum hornum nöguð í gegn
Út í hríðina förinni var heitið
Hungrið ýtti öllum áfram
Botnfrosinn fjörður
Bátar í heljargreipum
Fæðan undir mörgum föðmum af ís
Frosin tár særa kinn
Fjöllin hverfa í fönn
Hvítblinda tefur för
Vonleysi stöðvar för
Út fyrir fjörð, von um æti
Minnkar með hverju skrefi
Fingur og tær blásvartar
Brátt dvína allir kraftar
Við minni fjarðar standa
Með brostin hjörtu
Ís eins langt og augað eygir
Köld eyðimörk í allar áttir
Hungurverkir og þróttleysi
Tíminn rennur út
För til baka með hendur tómar
Einn af öðrum falla úr hor og vosbúð
Frostið nístir inn að beini
Hrímaugu stara upp í himin
Og hverfa senn í fönn
|
||||
6. |
Heift
04:49
|
|||
Friðsælt líf ég átti áður
Í skjólsælum dal umgirtum fjöllum
Bjuggum þar við allsnægtir
Liðum engan skort
Búsmali og vinnuhjú
Þar áttu öruggt skjól
En núna titrar hönd af bræði
Krepptir fingur ataðir blóði
Ungur halur liggur sár
Lífi glatar senn
Ekkasog frá ungri mey
Sem gaf mér sína ást
Heyrði óp, fót við hljóp
Á hljóðið rann, þar hann fann
Kom mér mót, svívirt snót
Sárt hún grét - ó, hve sárt hún grét
Augu mín fylltust af tárum
Sem umbreyttust í glóandi heift
Ég sá svart - þúsundfalt
Sáði blóði í fallegan svörð
Blóðug jörð
Hönd mín titrar enn af bræði
Brandur ataður fersku blóði
Hefnd!
|
||||
7. |
Bylur
03:31
|
|||
Föruneyti stormsins þeysir
Yfir Jökla og harðfenni
Milli fjalla ryður sér leið
Þeysireið feigra manna
Bjargbúar lögðu á flótta
Kumlbúar rifnir úr dys
Veinandi skottur og mórar
Hraktir á milli sanda
Svört sól vísar leið
Gegnum blásvartan byl
Moldbylur strýkir frón og menn
Sverfur fjöll í sand
Eyðing og vitfirring
Er minning stormsins
|
||||
8. |
Blóðmáni
05:25
|
|||
Horfir á blóðmánann hverfa á bak við ský
Ræð ei við óttann sem kemur nú á ný
Hvað varð um gleðina sem ég fann forðum
Hugur minn fyllist af ókunnum orðum
Óttinn heltekur við aukna óra
Vonandi fær þetta líf að tóra
Blóðmáni!
Örvænting ýtti út í svartagaldur
Upp á heiði eymdar stóð kaldur
Þuldi rímur og risti rúnir í stein
Blóð lak er egg fann bein
Óttinn heltekur við aukna óra
Vonandi fær þetta líf að tóra
Við skil lifs og dauða
Við skil lifs og dauða
Fórn mín - blóð mitt - blá augu - stara tóm
Blóðdropi - vörum á - líkami - án lífs
Blóðmáni!
Blóðmáni!
Komdu aftur - til mín
Hel slepptu þínu gripi
Komdu aftur - til mín
Rís aftur til lífs
Rís aftur til lífs
Rís aftur til lífs
Féll á kné - öskraði - á myrkrið
Smurði heitu - blóði á - andlitið
Með kaldri - þokunni - kom uppgjöf
Var nú - kominn yfir - ystu nöf
Bölva þér - nádrottning
Tókst allt - frá mér
Allt frá mér!
|
||||
9. |
Fálki
03:17
|
|||
Instrumental
(Dedicated to the memory of Guðlaugur Auðunn Falk)
|
Vetur Reykjavík, Iceland
Cold Icelandic black metal with some unique twists and turns. Formed in 2010 by Vetur Konungur.
Streaming and Download help
Vetur recommends:
If you like Vetur, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp